Málefni dagsins í dag.
25.01.2012 17:27:57 / 5binn

Kallinn á leið að stofna fyrirtæki

Nánari upplýsingar munu liggja fyrir mjög bráðlega.

Er að fara að flytja inn magnaða vöru.   :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2011 12:19:01 / 5binn

Gleðileg Jól



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.11.2011 10:59:57 / 5binn

Nokkrir léttir brandarar

Hrólfur og Erla voru vistmenn á geðsjúkrahúsi. Dag einn, er þau voru á
gangi við sundlaugina kastaði Hrólfur sér útí og sökk til botns. Erla
stakk sér útí laugina og bjargaði Hrólfi frá drukknun.
þegar yfirlæknirinn frétti af björgunarafreki Erlu ákvað hann að
útskrifa hana af sjúkrahúsinu, þar sem hún væri greinilega búin að ná snerpu og andlegu jafnvægi á ný.
... Daginn eftir fór hann til fundar við Erlu til að boða henni fréttirnar
og sagði þá:
"Erla mín, ég hef bæði góðar og slæmar fréttir að færa þér!
Góða fréttin er að ég ætla að útskrifa þig af spítalanum þar sem þúhefur sýnt merki um bata,
sem sýnir sig í því að þú bjargaðir honum Hrólfi frá drukknun. Slæma fréttin er hins vegar sú að hann Hrólfur er dáinn.
Karlgreyið hengdi sig í beltinu sínu í gærkvöldi eftir að þú hafðir
bjargað honum."
þá sagði Erla:
"Hrólfur hengdi sig ekki. Ég festi hann upp til þerris í
gærkvöldi. En hvenær má ég fara heim sagðirðu?"

Hjón í sumarfríi fóru í bústað á Þingvallavatni Eiginmanninum fannst best að veiða við sólarupprás. Konunni fannst gaman að lesa. Einn morgun snýr eiginmaðurinn aftur eftir nokkurra klukkustunda veiðar og ákveður að leggja sig. Þó konan þekki ekki vel til á Þingvöllum ákveður hún að fara á bátnum og sigla út á vatnið. ...Hún siglir stutta vegalengd út á vatnið, setur út akkerið og kemur sér vel fy......rir og fer að lesa bók. Stuttu seinna kemur veiðivörður siglandi að henni á bát sínum. "Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera?" spyr hann. "Ég er að lesa bók" svarar hún (og hugsar með sér hvort það sé ekki augljóst!). "Þú ert á lokuðu veiðisvæði" segir vörðurinn. "Fyrirgefðu en ég er ekki að veiða, ég er að lesa" segir hún. "Já" svarar hann, "En þú ert með allar græjur, hvað veit ég nema að þú farir að veiða eftir skamma stund. Ég verð að fá þig í land svo ég geti gert skýrslu um þetta". "Ef þú gerir það þá verð ég að kæra þig fyrir nauðgun!" svarar hún þá. "En ég hef ekki snert þig " segir vörðurinn forviða. "Það er rétt en þú hefur allar græjur og hvað veit ég nema að þú byrjir eftir skamma stund". "Hafðu það gott í dag frú" sagði vörðurinn og sigldi á brott. Boðskapur sögunnar: Aldrei rífast við konu sem les. Það er mjög líklegt að hún geti líka hugsað !!

Ég var föst í umferðateppu á Sæbrautinni þegar það var bankað á rúðuna hjá mér.

„Hvað er í gangi?“ spurði ég.

„Hryðjuverkamenn eru búnir að ráðast inn í alþingi og halda öllum þar í gíslingu“ sagði maðurinn. „Ef þeir fá ekki 10 milljónir fyrir klukkan átta munu þeir hella bensíni yfir alla þingmennina og kveikja í þeim. Þess vegna erum við að banka hjá fólki og safna framlögum.“
...
„Hvað eru menn að gefa í þetta?“ spurði ég.

„Svona 10 lítra ca!“

Dag nokkurn þegar maðurinn kemur heim frá vinnu sinni kemur hann að öllu gjörsamlega á hvolfi í húsinu. Börnin hans 3 voru úti, ennþá í náttfötunum að leika sér í drullunni með nestisboxin tóm og umbúðapappír var stráð út um alla lóðina. Dyrnar voru opnar á bíl frúarinnar, sama sagan var með útidyrnar á húsinu .Þegar hann kom inn í forstofuna blasti við honum enn meiri óreiða.Lampi hafðu verið fel...ldur um koll, gólfmottan var kuðluð við einn vegginn. Í næsta herbergi var teiknimynd í sjónvarpinu á hæsta styrk og leikföng af öllum stærðum og gerðum voru dreifð um allt herbergið.

Í eldhúsinu diskarnir flæddu út úr vaskinum, morgunmaturinn var sullaður út um allt borð, hundamatur út um allt gólf, brotið glas var undir borðinu og smá sandhrúga var við bakdyrnar. Hann hraðaði sér upp stigann troðandi á leikföngunum og fatahrúgum í leit að konu sinni. Hann fann hana hangsandi inni í svefnherbergi ennþá í krumpuðum náttfötunum að lesa smásögu. Hún leit brosandi á hann og spurði hvernig dagurinn hefði verið. Hann leit á hana ringlaðurog spurði, "Hvað skeði hér í dag?"Hún leit aftur brosandi á hann og svaraði:"Þú spyrð mig á hverjum degi þegar þú kemur úr vinnunni hvað ég hafi eiginlega verið að gera í allan dag?" "Já" segir hann tortrygginn. Hún svarar. "Jæja, í dag gerði ég ekkert!!!"


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2011 17:48:14 / 5binn

Spáin hans 5ba

Jæja nú er komið að hinni árlegu spá í enskaboltanum ,  spáin í fyrra gékk hreinlega ekki eftir nema þá að ég spáði rétt fyrir þeim sem komust upp í meistaradeild ,   Ég spáði chelsea sigri Arsenal öðru og Man Utd þriðja ,   Lengi vel gékk þessi spá  Arsenal var t.d í öðru allveg fram í mars.  enn Man Utd eitthvern veginn  hélt dampi út allt tímabilið og náði hægt og rólega að tryggja sér öruggt 1 sæti.  Reyndar var þetta eitt lélegasta tímabil hjá þeim rauðu enn önnur lið voru bara lélegri.  sennilegast gerði ég þau mistök í fyrra að ég gerði spánna um miðjann sept og þá var chelsea búið að rústa fyrstu leikjunum sýnum og það virtist enginn eiga break í þá.  spurning hvort sama sé á teningnum nú í ár ,  þ.e.a.s  Man utd eru búnir að rústa flestum leikjunum sýnum og byrja þetta tímabil mjög frábrugðið öðrum tímabilum þar sem oftast nær eru þeir  lengi í gang enn svo bara ganga þeir.

það má segja að Man UTd séu sigurstranglegastir í ár og það eru fáir sem geta stoppað þá nema þá bara Man city menn ,  Reyndar sá ég athyglisverða pælingu í Sunnudagsmessunni í gær þar sem farið var yfir leiki í deild eftir meistaradeild og þar voru borinn samann Manchester liðin tvö og Man Utd fékk heimaleik eftir alla meistaradeildar leikina enn  Man city fær bara útileiki.  mjög svo athyglisvert að þessi röðun skuli eiga sér stað og klárlega betra að fá hemaleik eftir erfiða leiki  í meistaradeildinni.  Þannig að við erum sennilegast að fara að sjá United taka dolluna í ár.

Ég gerði litla spá í ágúst með þeim fyrirvara um kaup og sölur hjá félögum fyrir félagskiptargluggann og þá  voru fyrstu 6 sætin hjá mér svona   Man Utd , Man City , Chelsea , Liverpool , Arsenal , Tottenham.

Enn þessi spá hefur aðeins breyst þar sem sum liðin hafa verið að styrkja sig  og önnur að veikja sig.   t.d keypti Arsenal 5 leikmenn á  síðustu 2 dögum gluggans og tel ég þau kaup eigi eftir að hjálpa þeim í baráttunni um 4  sætið.   Tottenham styrkti sig ekki mikið enn þeir misstu heldur ekki neinn og fengu Adebayor sem á klárlega eftir að hjá hjálpa þeim mikið í baráttunni.   Liverpool voru búnir að versla talsvert í sumar enn misstu mereles á síðustu stundu til chelsea.   Þar sem tímabilið er langt og nýjir menn eiga eftir að  aðlagast nýjum liðum ætla ég að breyta spánni minni aðeins  ,
 Ég tel að  Arsenal eigi eftir að sækja á hægt og rólega og  munu svo kaupa 1-2 menn í janúar til að fínstilla liðið eftir það klífa þeir töfluna hægt og rólega og enda í 4 sætinu.  Tottenham aftur ámóti eiga eftir að vera aðal keppinautur arsenal um 4 sætið  enn þeir munu enda í 5 sæti eftir harða keppni.  Liverpool afturámóti eru smá wildcard hjá mér ég veit eiginlega ekki hvar ég á að setja þá , stundum eru þeir magnaðir og stundum bara geta þeir ekki neitt.  Ég segi að það eigi eftir að verða þeim að falli og þeir endi í 6 sætinu.

Þannig að þetta lítur þá svona út hjá mér.

1 .  Man utd
2. Man city
3.  chelsea
4. Arsenal
5. Tottenham
6. Liverpool

Ég hvet svo menn að koma með sýna spá hér fyrir neðan. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.08.2011 21:50:59 / 5binn

Tækni tips mánaðarins

Jæja þið sem eigið eftir að fá ykkur android síma drífið í því því þetta eru tæki sem ekki er hægt að vera af án.  Er núna búinn að vera með Sony ericsson xperia Arc síðan í apríl og bara elska símann.

Enn burtséð frá símanum þá er það aðalega Android kerfið sem er svona mikil snilld,  þetta kerfi kemur frá google og allt sem þeir hafa gert hefur orðið vinsælt og maður býður bara eftir því að google plús eigi eftir að skáka facebook út þó að það verði nú frekar erfiður róður þar sem það eru komnir eitthverjir hundruða milljóna notenda.

Svona það efnilegasta sem ég hef séð í android er forrit sem ég sá sem heitir Viber og gerir þér kleypt að hringja ókeypis í annan notanda viber þ.e.a.s svo lengi sem hann er með ókeypis aðgang af interneti.   auðvita getur gprs kostnaður orðið eitthver ef viðkomandi er ekki á wi-fi eða er með eitthverja gprs gagnamagn innifalið í áskrift.   og þú þarft ekkert að leita af eitthverju notandanafni eða eitthverju svoleiðis þú bara loggar þig inn á viber með símanúmerinu þínu og viber finnur alla þá sem eru í símaskránni þinni sem eru með viber þannig að þú þarft ekkert að hafa fyrir því að finna notandanafn hjá vikomandi og eitthvað svoleiðis bull.   Eitthvað sem android og iphone notendur ættu að installa hjá sér sem fyst ef þeir vilja spara sér eitthverja aura.

http://viber.com/

Kveðja frá Tæknitröllinu


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.08.2011 23:47:59 / 5binn

Guð og jesú

Guð og Jesú sátu saman uppi á himninum.. þá hringdi dyrabjallan.. Guð fór til dyra og fyrir utan stóð Allah.. Guð var hugsi í smá stund, snéri sér svo við og spurði Jesú.. "pantaðir þú kebab?"

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2011 09:30:20 / 5binn

Nú fer Enski að byrja og þá fer Fantasy af stað


THULE deildinn verður að sjálfsögðu á sýnum stað

Kóðinn á deildina er 465075-127227

http://fantasy.premierleague.com/


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2011 12:27:12 / 5binn

Hvað þýðir að fara alla leið?


Maður bauð dömu í bíó um daginn á Hangover part 2 í Smárabíói. Hann sótti hana eins og herramanni sæmir , opnaði hurðina fyrir henni og hún sest inn. Þau leggja af stað og hún snýr sér að honum og segir: " Ég vil bara að þú vitir að ég fer ekki alla leið á fyrsta deiti!"
Svo hann lét hana út á Dalveginum

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 00:24:23 / 5binn

Hugmynd af sólarlandarferð í sumar

Jæja við erum ekki búinn að fá neitt sumar hérna á íslandi af viti þannig að mér var að detta í hug hvort eitthverjir væru ekki til í að fara í hópferð út um miðjan ágúst.

Hugmyndin er að fljúga út eitthvern tíman miðjan ágúst  með icelandair til stokkhólms , ef pantað er nógu tímalega ætti það flug að kosta í kringum 40 þúsund.

Icelandair tengill

Hægt væri að taka 1-2 daga í stokhólmi  og svo væri tekið last minute díll frá sista minuten.  sem væri þá bara pantað 1-2 vikum fyrir brottför til að fá góðan díl.   Ég hef verið svona dálítið að horfa til sunny beach í búlgaríu hægt væri að fá flug og hótel þangað fyrir 2500 - 3500 sænskar sem er eitthvað í kringum 45-60 þúsund.   þannig að þetta ætti að vera grunn pakki uppá 85-100 þúsund sem er bara þræl vel sloppið að mínu mati.

sidsta minuten síða

Er ekki eitthverjir til í þetta  ?


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.06.2011 22:57:18 / 5binn

Barmahlíðin komin á leigu aftur

Jæja þá er frænkan að fara að flytja aftur uppí norðlingarholt.  og  barmahlíðin er þá aftur kominn á leiguskrá.

Er búinn að fá svona 20-30 fyrirspurnir og á næstudögum koma eitthverjir að skoða.

Þannig að áhugasamir geta haft samband ef þeir vilja frábæra íbúð  :)




» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2011 00:07:58 / 5binn

Jæja Hvað er að frétta



Jæja nú er bara allt byrjað að hækka og hækka aftur , þetta ætlar engann endi að taka.  Ég segji það nú og mun halda mig við það .  þó svo að evrópu sambandið sé ekkert spes kostur þá er það betri kostur enn þetta sem við lifum í í dag.   ef það er ekki verðbólga eða verðhækkanir þá eru það gengisfall og gjaldþrot sem herja á okkur íslendinga.
Nú í dag var enn og aftur verið að hækka bensínlítrann og er hann nú kominn yfir 240 krónur.  hvað er það shitturinn.  þegar 10 lítrar af bensíni eru  komnir yfir 1% af meðaltekjum íslendings þá er eitthvað að.  og þú kemst litlar 100 km fyrir 1 % af tekjunum þínum.  hvað er það kannski 3-4 ferðir í vinnunna engöngu.  þannig að þú ert kannski að fara með 5 % af laununum þínum engöngu í bensín. og er það gróft reiknað.  þ.e.a.s það á nefnilega eftir að taka skatt af þessum 240 þúsundum sem þú ert með í laun og jú þú ert því miður í hátekju þrepi 2 og borgar eitthvað sky-high í skatta líka.

  Ég fór um daginn að velta þessu fyrir mér þegar ég fyllti Hebbann fyrir litlar 12002 kr  hvað þetta er orðið mikið rugl, sama dag fór ég á ruby tuesday og pantaði mér nautalund og humar fyrir 3800kr.   peninga skynið hjá mér var bara hand ónýtt mér fannst nautalundinn bara hræ ódýr miða við helvítis áfyllinguna.  enn fékks svo náturulega sjokk þessi mánaðarmótin eins og öll hin þegar Masterkard reikningurinn hljómaði uppá 170 þúsund, og ég sem hélt að ég væri að taka því svo varlega í útgjöldum þennan mánuðinn.

Svo er nárurulega allveg ömurlegt að það sé ekki hægt að semja um eitthverjar launahækkanir eins og menn kannski hafa verið að taka eftir í sjónvarpinu þessa daganna.  eitthvað verið að blanda sjávarútvegsmálum og eitthverju inní samningana sem er bara bull.  það á bara að hækka hjá okkur launin og púnktur .  þau fyrirtæki sem ekki hafa efni á því ættu því bara að fara á hausinn eða minnka starfshlutfall í staðinn.  ef þú þyrfti bara að mæta 4 daga í viku þá færðu allaveganna minni bensín útgjöld á mánuði.   Miða við það sem verið er að tala um eru 5% launahækkanir.  það eru 1 dagur á mánuði.  við ættum þá allaveganna að fá einn verkfalls dag á mánuði ef ekki tekst að semja.

Djöfull væri það næs ef það væri allsherjar verkfall í enda mánaðarinns.  það væri gaman að sjá svipinn á þessari blessuðu velferðarstjórn þá.

HÆTTUM AÐ LÁTA RÍÐA OKKUR Í RASSGAT LÁTUM HEYRA Í OKKUR.

Kveðja
5bi  500 kall.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2011 22:33:47 / 5binn

Vantar eitthverjum sófaborð

Eitthverjir kannski muna eftir þessu frá Barmahlíðinni   :)

þetta fæst gefins ef það verður sótt nógu snemma  :)

http://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?badvid=23767102&showAdvid=23767102&advtype=4#m23767102


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2011 20:08:58 / 5binn

Arsenal setti met - Fyrsta liðið til að eiga ekki skot


Arsenal varð á þriðjudaginn fyrsta liðið í Meistaradeildinni sem nær heilum leik án þess að eiga skot að marki.

Arsene Wenger og félagar töpuðu 3-1 fyrir Barcelona en eina mark Arsenal var sjálfsmark Sergio Busquets.

Tölfræðifyrirtækið Opta hóf að taka tölfræði fyrir Meistaradeildina fyrir átta árum og hefur Arsenal nú sett met sem félagið getur ekki verið stolt af.

981 Meistaradeildarleikur hefur farið fram síðan Opta tók til starfa og Arsenal er fyrsta liðið af 1.962 sem ekki nær skoti á nokkurn hátt í leik síðan þá.

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=105346#ixzz1GEDwrmnF


Já sæll,  eigum við að ræða hvað Barcelona er gott lið eða eigum við að ræða hversu lélegir Arsenal voru.  Ég get eiginlega lítið tjáð mig um þetta því mér eitthvernveginn fannst Barcelona svo góðir.  Ef ég hefði horft á þetta hlutlaust hefði ég sennilegast komist af þeirri niðurstöðu að Arsenal voru bara hörmulegir í þessum leik.

Enn jæja hvað með það það er svo sem ásættanlegt að tapa fyrir besta liði í sögu fótboltans.  svona eins og við íslendingar þegar við töpum alltaf á móti frökkum.

Enn það sem er kannski grátlegast er að dómararnir þurftu að hjálpa Barcelona til að klára þennan leik.  Rauða spjaldið sem  Van persie fékk var náturulega ekki sanngjarnt og svo fengu þeir víti  þarna til að skora 3 og síðasta markið sem þeim vantaði.   Enn svona þrátt fyrir ömurlegan leik minna manna þá vorum við í þræl góðri stöðu í stöðunni 1-1 og 58 mínútur búnar að leiknum.  Barcelona hefði þurft 2 mörk og það er ekkert gefið á móti ensku liði.

Enn hvað með það ,  þetta er ábyggilega í 3-4 árið í röð sem ég kvarta og kveina hér á þessum tíma ársinns enda sama vandarmálið enn að hrjá mitt lið .   Menn virðast alltaf vera meiddir og ónýtir í mars og þá dettum við út úr flestum keppnum.   hvað er þetta að segja okkur . hmmm já hugsamlega að þessi kjúklinga stefna Wengers sé enn og aftur ekki að virka.  við þurfum eitthverja meiri breidd eða allaveganna fleirri sterka leikmenn.

Ég spái því að við dettum út í bikarnum á móti United næstu helgi og ef það gerist þá gerist slíkt hið sama í deildinni.

Ef það vill svo til að við náum engum bikar á þessu ári tel ég að það sé tímabært að selja hinn sí meidda Fabregas.  og kaupa eitthvern  annan playmaker sem meiðist minna.
Svo held ég að það sé líka tímabært að casha inn van persie.

Enn ef við seljum annan hvort af þessum  þá er það skilirði að kaupa reynda og góða leikmenn í staðinn. enga kjúklinga.  til að búa til meistara lið þarftu að hafa bæði unga og spæka ásamt því að hafa reynslunna.

Kveðja  Fitubollann.






» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2011 08:22:12 / 5binn

Hvað er að frétta með þetta eurovision lag

Hvað er málið með dauðsföll og frægð.

það er eins og allt verði vinsælt eftir að höfundur er látin, hvort sem það er í mynd - eða tónlistargeiranum.

Enn varðandi þetta eurovision lag þá held ég að þetta sé slappasta framlagið okkar til þessa.

Enn maður veit svo sem ekki hvernig evrópa tekur við þessu.  þ.e.a.s kannski fær þetta eitthverja athygli vegna þessa dauðsfalls höfundar.

ég spái því að þetta lendi í 15 sæti í undannkeppninni. þannig að við keppum ekki í aðalkeppninni í ár.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2011 17:39:24 / 5binn

úff mikið búið að vera að gera

Hef ekkert komist í að blogga vegna mikilla anna uppá síðkastið.

Ég lofa að koma með eitthvað bitastætt fljótlega.

Enn annars er það bara handboltinn sem er það sem er mest spennandi í dag.

Spurning að menn setji spár sýnar  hér  í hvaða sæti ísland lendir í .  

og jú einnig væri gott að fá spá hvernig  Frakkaleikurinn fer.    spurninginn er hvort Frakkar munu binda endi á 3 stórmótið okkar í röð.

Ég ætla að hugsa þetta aðeins áður enn ég kem með spá  :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20
Heimsóknir
Í dag:  20  Alls: 89425
Könnun
Eigum við að ganga í Evrópusambandið